Hvað þýða merkin?
- Staðfest með heimildVið höfum opnað heimildina sjálf.
- LíklegtAllt bendir í sömu átt en vantar staðfestingu.
- ÓstaðfestMinning eða frásögn sem bíður eftir heimild.
- Heimildum ber ekki samanVið segjum frá því og geymum báðar frásagnir.
Merki við hverja fullyrðingu sýnir hversu traust hún er.
Hvað var hér fyrir byggð?
Hver átti landið, hver keypti það og hver skipulagði götuna?
Hvað var hér fyrir byggð?
Hver átti landið, hver keypti það og hver skipulagði götuna? Hér er það sem heimildir segja, með stöðumerkingu.
- Jörðin Laugarnes. Landið undir Teigunum tilheyrði jörðinni Laugarnesi. Staðfest með heimild
- 1885: Reykjavíkurbær kaupir. Bærinn keypti jarðirnar Rauðará, Laugarnes og Klepp. Staðfest með heimild Byggðakönnun borgarhluta 4, bls. 12.
- Erfðafestulönd. Bærinn leigði land á erfðafestu til ræktunar og búrekstrar, svonefnda bletti. Staðfest með heimild Sama rit, bls. 13. Í skjölum um götuna koma fyrir heitin Laugarnesmýrarblettur og Kirkjumýrarblettur. Líklegt – þarfnast staðfestingar
- 1944–1946: bærinn skipuleggur. Það var sveitarfélagið, ekki einkaeigandi, sem skipulagði Teigana. Skipulagið er kennt við Einar Sveinsson og Þór Sandholt. Staðfest með heimild
- Leigulóðir. Húsin voru byggð á lóðum sem bærinn leigði. Bæjarráð úthlutaði lóðum við Laugateig 21.6.1945. Lóðirnar voru leigðar til 75 ára frá 1.7.1945 með ársleigu sem nam 5% af fasteignamati lóðar. Skilyrði voru að byggingarnefnd samþykkti teikningu og að gröftur hæfist fyrir 15.9.1945. Byggingarfrestur var framlengdur til 1.5.1946. Á lóðirnar var lögð kvöð um að ekki mætti selja húsin þeim sem fluttu til bæjarins eftir 9.9.1941 án samþykkis bæjarráðs. Staðfest með heimild Leigusamningar og bréf borgarstjóra, Þjóðskjalasafn Íslands (lóðir nr. 64 og 66, nú 48 og 50).
- Númerabreytingin. Lóðirnar fengu fyrst númer 16 hærri en nú. Leigusamningar frá ágúst og október 1946 nota þegar nýju númerin, svo að breytingin var gerð áður en fundargerðin 1947 nefnir „nr. 37 (áður nr. 53)“. Staðfest með heimild
- 27.3.1947: götunöfnin. Byggingarnefnd fjallar um nöfn Teigagatna. Staðfest með heimild
- Vor 1947: deilt um bakhúsin. 29.5.1947 lagði byggingarnefnd fram bréf íbúa við Laugateig 50, 52, 58 og 60 og Sigtún 53, 55 og 57 með mótmælum gegn byggingu húsanna nr. 54 og 56. 12.6.1947 var lagt fram bréf um byggingu á lóðinni. Þetta styður frásögn íbúa um að ekki hafi verið sátt um bakhúsin. Fundargerðirnar nefna ekki tengsl deilunnar við númerabreytinguna. Staðfest með heimild
- 26.6.1947: „nr. 37 (áður nr. 53)“. Fundargerð staðfestir að oddatölurnar lækkuðu um 16. Staðfest með heimild
Heimildir: Byggðakönnun borgarhluta 4 (Borgarsögusafn), bls. 12–13; fundargerðir byggingarnefndar Reykjavíkur 1947 (Þjóðskjalasafn Íslands). Hver átti hvern blett áður en lóðum var úthlutað hefur ekki verið rannsakað.
Erfðafestubréf, myndir af túnum eða kálgörðum, eða frásagnir af landinu áður en byggt var.
Hjálpaðu okkur að skrá sögu Laugateigs
Við söfnum heimildum, ljósmyndum og minningum til að varðveita sögu húsanna og fólksins við götuna. Stuðningur þinn hjálpar okkur að gera efnið opið og aðgengilegt.

Síminn les stoppin upphátt með talgervli tækisins. Raddir og viðtöl við heimafólk koma síðar.
Laugateigur, hús fyrir hús
Gengið eftir Laugateig frá lægri númerum til hærri. Á leiðinni eru heimili þekktra íbúa, hús byggð eftir sömu teikningu, verslanir sem komu og fóru, bílskúr sem varð kosningaskrifstofa, sprenging á gamlárskvöld og teikningar sem sýna að húsin skiptu um númer. Lengd og göngutími hafa ekki verið mæld.
Stoppin eru auðkennd. Smelltu á hús til að opna síðu þess.
Opnar leiðina í Google Maps með stoppunum í röð. Kortið byrjar á staðsetningunni þinni og sýnir hvað er í kringum þig. Aðeins fyrstu 10 stopp rúmast í einni slóð.
Opna í Google MapsHúsin við götuna
Grænu húsin eru stopp á göngunni, í númeraröð. Smelltu á hús til að stökkva á stoppið. Grá hús eru í skrám okkar en ekki stopp á þessari göngu enn. Skýringarmynd, ekki mæld lóðaskipan; öll hús götunnar eru ekki komin enn.
- Stopp 1 · Laugateigur 7 · Sama teikningLíklegt – þarfnast staðfestingar
Fimm hús, ein gerð: 7, 13, 15, 17 og 21
Lesa stoppið
Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson teiknuðu Laugateig 7, 13, 15, 17 og 21 árið 1946 (teikningar 338–341/46 og 613/46). Þann 9. mars 1948 voru þessi fimm hús og sjö hús við Hofteig metin á sama fundi, hvert á 306.900 kr. Við húsin við Hofteig stendur „sama og Hofteigur 4“. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
- Stopp 2 · Laugateigur 11 · Þekktur íbúiStaðfest með heimild
Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur
Lesa stoppið
Adda Bára Sigfúsdóttir (1926–2022) var skráð til heimilis á Laugateig 11 á framboðslista 1959. Hún var veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands og borgarfulltrúi í Reykjavík. Faðir hennar, Sigfús Sigurhjartarson, var skráður á nr. 24 árið 1950.
- Stopp 3 · Laugateigur 12 · Sama teikningStaðfest með heimild
Bílskúr sem kosningaskrifstofa
Lesa stoppið
Bílskúrinn var kosningaskrifstofa fyrir Laugarnesskólahverfi í alþingiskosningunum 1967. Nr. 12 og 16 voru teiknuð samtímis af Gísla Halldórssyni 1948 og metin sama dag á sama verði. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
- Stopp 4 · Laugateigur 19Staðfest með heimild
Áfangaheimili og mótmæli 1985
Lesa stoppið
Fangahjálpin Vernd keypti húsið fyrir áfangaheimili. Íbúar mótmæltu á fjölmennum fundi og 450 skrifuðu undir. Heimilið tók samt til starfa. Sagan er sögð á götuhæð, án nafna einkaaðila.
- Stopp 5 · Laugateigur 24Staðfest með heimild
Búðirnar á nr. 24 og bæjarfulltrúinn
Lesa stoppið
Teikning frá 1946 sýnir „BÚГ á 1. hæð. Í blöðunum eru nefndar Stjörnubúðin (1949), Verzlunin Laugateigur (frá 1951), mjólkurbúð (1952) og Sunnubúðin (1963). Spennistöðin Laugateigur 24A var samþykkt 1978 og hét áður Sigtún 39. Sigfús Sigurhjartarson (1902–1952) alþingismaður og bæjarfulltrúi var skráður á nr. 24 á framboðslista í janúar 1950.
- Stopp 6 · Laugateigur 28Staðfest með heimild
Píanótónar og sprenging á gamlárskvöld
Lesa stoppið
Á heimili á nr. 28 var auglýst píanókennsla árin 1962–1964. Á gamlárskvöld 1971, um kl. 23.30, sprakk öflug sprengja á götunni móts við húsið. Um 40 rúður brotnuðu í átta húsum og hola kom í malbikið. Enginn fannst sem bar ábyrgð.
- Stopp 7 · Laugateigur 30 · Sama teikningStaðfest með heimild
Parhúsið 30 og 32
Lesa stoppið
Ein aðalteikning, 757/45, eftir Hafliða Jóhannsson nær yfir bæði húsin. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
- Stopp 8 · Laugateigur 31Staðfest með heimild
Þvottahús og verndað hús
Lesa stoppið
Þvottahúsið Laugateig 31 auglýsti 1948–1951. Í deiliskipulagi Teigahverfis frá 2002 eru nr. 27 og 31 nefnd í kaflanum um verndun 20. aldar bygginga.
Morgunblaðið 1. apríl 1948Deiliskipulag Teigahverfis, syðri hluta (2002) - Stopp 9 · Laugateigur 37Staðfest með heimild
Laugabúðin, seinni staðurinn
Lesa stoppið
„Laugabúðin er flutt á Laugateig 37“ (1955). Búðin auglýsti meðal annars í skólablaði Laugarnesskóla. Árið 1970 var verslunarhúsnæðið auglýst til leigu, svo búðin hefur líklega hætt þá.
- Stopp 10 · Laugateigur 42Staðfest með heimild
Elsta brunavirðing götunnar
Lesa stoppið
Af fyrstu brunavirðingum allra 48 húsanna er sú elsta frá 25. febrúar 1947, á þessu húsi. Á teikningum 1945–1946 heitir það nr. 58.
Brunavirðingar Reykjavíkur, aðfnr. 4339 - Stopp 11 · Laugateigur 46 · Sama teikningStaðfest með heimild
Parhúsið 46 og 48
Lesa stoppið
Bárður Ísleifsson teiknaði „Hús við Laugateig nr. 62 og 64“, síðar 46 og 48, á eina teikningu sem var samþykkt 27. september 1945. Húsin voru metin sama dag, 10. desember 1947, hvort á 190.500 kr. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
- Stopp 12 · Laugateigur 50Staðfest með heimild
Hringlaga gluggar frá 1945
Lesa stoppið
Þórir Baldvinsson teiknaði húsið og teikningin var samþykkt 13. sept. 1945, þegar það hét nr. 66. Kringlóttu gluggarnir sitt hvorum megin við útidyrnar á norðurhlið eru á aðalteikningunni. Hvenær húsið var fullbyggt er óvíst, því heimildum ber ekki saman.
Skjalasafn Reykjavíkur, aðaluppdráttur 1945 - Stopp 13 · Laugateigur 52 · Þekktur íbúiStaðfest með heimild
Eggert Magnússon listmálari
Lesa stoppið
Eggert Magnússon, vörubifreiðastjóri, vélstjóri og listmálari, bjó á Laugateig 52. Listasafn Reykjavíkur sýndi 41 olíumálverk eftir hann á Kjarvalsstöðum 1987. Hann lést árið 2010.
- Stopp 14 · Laugateigur 58Staðfest með heimild
Þar sem númerin breyttust
Lesa stoppið
Afstöðumynd á teikningu nr. 58 frá 1945 sýnir nágrannahúsið með tveimur númerum, 50 og 66, hlið við hlið. Á öllum teikningum með yfirstrikuðu númeri er gamla númerið 16 hærra en það nýja. Hvers vegna götunni var endurraðað er enn óstaðfest.
Skjalasafn Reykjavíkur, aðaluppdrættir 1945–1946 - Stopp 15 · Laugateigur 60Staðfest með heimild
Laugabúðin opnar 1947
Lesa stoppið
Laugabúðin opnaði hér 9. maí 1947 með nýlenduvörur og kjöt og flutti á nr. 37 í mars 1955. Eftir það voru hárgreiðslustofur í húsnæðinu, Permína og síðar Raffó, til um 1959.
Vantar stopp á leiðina?
Áttu minningu, mynd eða heimild um hús við götuna sem ætti að vera hluti af göngunni?
Leggja til stopp