GötusögurStreet Memories
Hvað þýða merkin?

Merki við hverja fullyrðingu sýnir hversu traust hún er.

Hús · Laugateigur · 105 Reykjavík

Laugateigur 37

1 teikning frá 1945

Teikning 1945
Hvernig á að lesa síðuna

Hvert atriði er merkt eftir því hversu traust það er og hvort það lýsir fortíð, nútíð eða framtíð.

Staðfest með heimildByggt á munnlegri frásögnLíklegt – þarfnast staðfestingarTilgátaNúverandi ástandFyrirhugaðFramtíðarsýn
01

Yfirlit

Heimilisfang og helstu staðreyndir

Hús nr. 53 við Laugateig, síðar 37, 1945GS-LTG-37-S08
Heimilisfang
Laugateigur 37, 105 Reykjavík
Staðfest með heimild
Fyrsta samþykkta teikning
13. ág. 1945
Staðfest með heimild
Hönnuður
Bárður Ísleifsson
Staðfest með heimild
Eldra húsnúmer
53
Staðfest með heimild
Trésmíðameistari
Lesið sem Guðmundur Jóhannsson
Líklegt – þarfnast staðfestingar
Múrarameistari
Ólæsilegt í þessari upplausn
Óstaðfest
Rafvirkjameistari
Kemur ekki fram
Þarf frekari rannsóknar
Starfsemi
Laugabúðin (mars 1955 – um 1970)
Staðfest með heimild
Byggingarár
Óstaðfest. Teikning samþykkt 1945
Áætlað
Húsnúmer í tímans rás
Laugateigur 531945 – ?Yfirstrikað í titli teikningar.Staðfest með heimild
Laugateigur 37? – í dagLeiðrétt á sömu teikningu.Staðfest með heimild
02

Húsasaga

Hönnun, bygging og breytingar

Hver teiknaði og byggði?

Lesið af teikningum

HlutverkNafn eða undirskriftTeikningStaða
Arkitekt / hönnuðurBárður Ísleifsson1945 · S08Staðfest með heimild
Byggingarstjóri / trésmíðameistariLesið sem Guðmundur Jóhannsson1945 · S08Líklegt – þarfnast staðfestingar
MúrarameistariÓlæsilegt í þessari upplausn1945 · S08Þarfnast staðfestingar
RafvirkjameistariKemur ekki fram á neinni teikningu. Leita í úttektum og gögnum rafmagnseftirlits.–Þarf frekari rannsóknar

Tímalína hússins

  1. 1945Hús nr. 53 við Laugateig, síðar 37Samþykkt 13. ág. 1945
  2. 1955LaugabúðinStaðfest með heimild
Ljósmyndir

Myndir af Laugateig 37

Fundargerðir byggingarnefndar · Staðfest með heimild

Húsið í fundargerðum 1947–1951

  • 26.6.1947 · Steypa girðingu um lóðina · Samþ. (skráð: „37 (áður nr. 53)“)
    Eldra númer 53 → nýtt 37: staðfestir endurnúmerun Laugateigs (oddatölur −16)

Fundargerðir byggingarnefndar Reykjavíkur 1947–1951 (Þjóðskjalasafn Íslands, afrit send Götusögum í október 2026). Nöfn umsækjenda eru ekki birt.

03

Fólk og minningar

Íbúar, starfsemi og frásagnir

Frá íbúum · 1 óstaðfest
Úr dagblöðum 1944–1955

Laugateigur 37 á Tímarit.is

Laugabúðin

Staðfest með heimild
Matvöruverslun · mars 1955 – um 1970

„Laugabúðin er flutt á Laugateig 37“ (auglýsing í mars 1955). Sími 34032. Elín Guðmundsdóttir var kaupmaður í Laugabúðinni samkvæmt heimildarmanni Götusagna; óstaðfest er hvort hún rak búðina eftir flutninginn á nr. 37 eða allan tímann. Gústaf A. Ágústsson, sem bjó á nr. 37, seldi húsið ásamt fleirum í maí 1964 og búðin starfaði áfram eftir það. Auglýsti í skólablaði Laugarnesskóla og seldi minningarkort. Brotist var inn í búðina og stolið peningum, tóbaki og sælgæti, sagt frá í júní 1962. Í maí 1970 var „verzlunarhúsnæði á Laugateigi 37“ auglýst til leigu, svo verslunin hefur þá líklega hætt.

Leit að „Laugateig 37“ og „Laugateigi 37“ á árunum 1944–1955 skilaði 26 niðurstöðum: auglýsingar, tilkynningar og listar. Nöfn úr þeim eru ekki birt hér fyrr en búið er að staðfesta hver bjó í húsinu og hvort viðkomandi sé á lífi.

Skoða leitina á Tímarit.is
Nágrannar á netinu

Facebook-hópur: Laugateigur 25–60

Íbúar húsanna nr. 25–60 eiga sinn eigin hóp. Hann er rekinn af íbúum, ekki af Götusögum.

Opna hópinn
04

Teikningar og heimildir

Frumgögn, tilvísanir og skýringar á óvissu

Teikningar

1 teikning

SkráningarreglaAf hverri teikningu er lesið: hönnuður, trésmíðameistari, múrarameistari, rafvirkjameistari og byggingarefni. Ólæsileg nöfn eru sýnd sem klippa úr teikningunni.
GS-LTG-37-S08Aðalteikning · M 1:100 og 1:500

1945 Hús nr. 53 við Laugateig, síðar 37

Samþykkt á fundi byggingarnefndar 13. ág. 1945
Arkitekt / hönnuður
Bárður ÍsleifssonStaðfest með heimild
Undirritað „Reykjavík í ágúst 45“.
Byggingarstjóri / trésmíðameistari
Lesið sem Guðmundur JóhannssonLíklegt – þarfnast staðfestingar
Múrarameistari
Ólæsilegt í þessari upplausnÞarfnast staðfestingar
Rafvirkjameistari
Kemur ekki fram á teikningunniÞarf frekari rannsóknar
Byggingarefni
Ekki skráðÞarf frekari rannsóknar
Klippa úr efri hluta teikningar: titill, meistarar, samrit og samþykkt · þarfnast staðfestingar
Klippa úr neðra horni: undirskrift hönnuðar og dagsetning
Lesið af teikningunni
  • Lóð 572 m², hús 126,48 m², bílskúr 27,4 m².
  • Á afstöðumynd er „Nr 53“ strikað yfir og 37 skrifað.
  • Meistarar skráðir 19/12-45. Samrit móttekið 25/9-45.
  • Móttakandi samrits: Lesið sem Gunnar Sigurðsson (þarfnast staðfestingar).
  • Heimild: Skjalasafn Reykjavíkur, aðaluppdrættir. Sótt í október 2026.
Heimildir

Hvar er meira að finna?

AðaluppdrættirSkjalasafn Reykjavíkur
Umsóknir og fyrirspurnirPlanitor
FasteignaauglýsingFastinn.isAurbjörg: verðmat og sölusagaMyndir í auglýsingum eru í eigu fasteignasölu eða ljósmyndara og birtast aðeins hér með leyfi.
Heimildir

Heimildir um þetta hús

Teikningar

Skjalasafn Reykjavíkur, teikningasafn. 7 skráðar teikningar af húsinu.

Teikningaskrá hússins
  • 1945 · 597-598/45 · Bárður Ísleifsson
  • 1946 · 224/46 · Bárður Ísleifsson
  • 1947 · 390/47 · Bárður Ísleifsson
  • 1954 · 926/54 · Bárður Ísleifsson
  • 1988 · 401/88 · Egill Guðmundsson
  • 1990 · 438/90 · Egill Guðmundsson
  • 2017 · BN053375 · hönnuður óskráður
Teikningasafn Skjalasafns Reykjavíkur

Allar heimildir götunnar

Fyrsta brunabótavirðing

21.4.1947 · brunabótanúmer 3302 · metið á 264.600 kr.

1 hæð, geiraris og kjallari, úr steinsteypu. Múrhúðað utan með marmarasalla og tinnu. Olíukyntur ketill. Steinsteyptur bílskúr á lóðinni.

Fyrsta mat sýnir að húsið var tilbúið til virðingar á þessum degi. Nafn eiganda er ekki birt.

Staðfest með heimild Brunavirðingabók Reykjavíkur 9.6.1945–28.8.1947, aðfnr. 4339 (Borgarskjalasafn, nú Þjóðskjalasafn)
Húsaskrá Reykjavíkur

Byggingarár skráð: 1937. Ártalið stenst ekki: fyrsta teikning hússins er frá 1945 og fyrsta brunavirðing frá 21. apríl 1947. Líklega innsláttarvilla fyrir 1947. Brunavirðingarnúmer er ekki skráð.

Misræmi – þarf frekari rannsóknar Húsaskrá Borgarskjalasafns