Tólf hús, ein gerð
Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson teiknuðu Laugateig 7, 13, 15, 17 og 21 árið 1946 (teikningar 338–341/46 og 613/46). Þann 9. mars 1948 voru þessi fimm hús og sjö hús við Hofteig metin á sama fundi, hvert á 306.900 kr. Við húsin við Hofteig stendur „sama og Hofteigur 4“. Í fundargerð 9.1.1947 eru þrjár samhljóða umsóknir í röð, fyrir nr. 7, 13 og 17: að hækka þak og setja kvisti á hús í smíðum, sama gjald.
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.